Matseðill
Yoyo flytur sjálft inn öll ísgerðar- og bragðefni beint frá Ítalíu og býr til á staðnum ítalskan Gelato mjúkís. Í boði eru 6 tegundir t.d. súkkulaði, vanillu, oreo, jarðarberja, salt karamellu, kökudeig og cotton candy.
Allur sorbet er gerður á staðnum frá grunni og í boði eru 6 tegundir af ávaxta sorbet t.d. kíví, mango, hindberja, sítrónu, kirsuberja og ferskju.
Nammibarinn okkar býður býður uppá fjölbreytt úrval af súkkulaði, lakkrís, sleikjó og hlaupi.
Í kælinum okkar má svo finna niðurskorna ávexti, sælgæt ásamt brownies, oreo og kökudeigi.
Í sósupumpunum okkar má finna heita súkkulaði- og karamellusósu og kalda súkkulaði- og jarðarberjasósu.
Ísinn okkar inniheldur laktósa (mjólkurafurðir) en er allur glúten frír (nema Oreo en í hann er bætt Oreo kexi við framleiðslu).
Sorbet okkar er vegan og er laktósa og glúten frír.
Hægt er að sjá nánari innihaldslýsingar hjá starfsmönnum.
